Bekkurinn minn 10: Hvar er Lóla?
HVAR ER LÓLA?
fjallar um Davíð dýravin og Lólu, músina hans. Einn daginn laumar Lóla sér með í skólann og leikur þar lausum hala.
Davíð og vinir hans verða að finna Lólu áður en bjallan hringir.
Bekkurinn minn er bókaflokkur ætlaður byrjendum í lestri. Hver saga er sögð frá sjónarhorni eins nemanda en allar aðalpersónurnar eru saman í bekk í íslenskum grunnskóla. Lesandi fær því að kynnast fjölbreyttum veruleika ólíkra barna, bæði innan og utan veggja skólans. Sögurnar eru áhugaverðar og spennandi, með góðum og fjölbreyttum orðaforða, aðgengilegu letri og rúmu línubili.
